Útlokar ekki sameiningu á vinstri væng

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, alþingismaður segir samstarf vinstriflokkanna á Alþingi vera með ágætum og útlokar ekki nánara samstarf þeirra í aðdraganda Alþingiskosninga vorið 2017.

Þetta kom fram í þætti nafnanna Ólafs Arnarsonar og Ísleifssonar á Hringbraut í gærkvöld, en þáttinn má sjá hér á vef stöðvarinnar.

Um fylgiskannanir sagði hún að þær sendu skýr skilaboð um að stjórnmálaflokkarnir hefðu ekki staðið sig nægilega vel.

Ólafarnir eru frumsýndir öll fimmtudagskvöld í haust og vetur og greina helstu efnahags- og þjóðmál.