Um 300 þúsund komur eru á bráðamóttöku Landspítalans á ári hverju og hefur þeim fjölgað jafnt og þétt á hverju ári undanfarna áratugi - og er álagið á starfsfólk og húsnæði spítalans orðið mjög mikið.
Þetta kom fram í sjónvarpsþættinum Atvinnulífið á Hringbraut í gær, en þar var sýndur seinni þátturinn af Landspítalaheimsókn umsjármannsins Sigurðar K. Kolbeinssonar sem sprangað hefur um ganga og stofur spítalans síðustu daga og gefið áhorfendum tækifæri til að kynnast starfsemi hans í þaula, meðal annars sýnt þeim ofan í kviðarhol sjúklinga þar sem verið er að laga kransæðar.
Um 13 þúsund aðgerðir eru gerðar á Landspítalanum á ári hverju, eða að meðaltali 50 á dag - og er skipulagið á spítalanum eftir því mikið og gott, enda í mörg horn að líta eins og vel kemur fram í þessum þáttum sem hægt er að nálgast hér á hringbraut.is, en seinni þátturinn veðrur og endursýndur á Hringbraut í dag.
Sá þáttur er helgaður framtíðarhúsnæði spítalans sem styr hefur staðið um hvar eigi að rísa - og fá áhorfendur þar að kynnast áformum um uppbyggingu nýs spítala við Hringbraut sem verður vart undir 70 þúsund fermetrum að stærð og kostar að líkindum ekki undir 50 milljörðum króna.
Í þættinum er rætt við forsvarsmenn Spítalans okkar, sérfræðinga og landlækni um þá brýnu þörf sem er á að reisa nýjan Landspítala á næstu árum, en frumhönnun á honum er lokið og munu fyrstu framkvæmdir hefjast á næstu vikum.