Útlitsdýrkun og líkamsvirðing verður til umfjöllunar í þætti Bjarkar Eiðsdóttur, Kvennaráðum á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld en eins og vanalega er þátturinn fullur af góðum gestum - og ráðum.
Mikill og áberandi þrýstingur hefur ágerst í samfélaginu á síðustu árum í þá veru að konur eigi að líta meira og minnar allar eins út, hvort heldur er í laginu, andlitsfalli, líkamsburði, klæðnaði og hárgreiðslu - og raunar nær þessi þrýstingur líka til karla. Áherslan á útlitið hefur fyrir vikið oftar en einu sinni orðið inntakinu yfirsterkara.
Til að ræða þessi mál fær Björk til sín þær Margréti Erlu Maack sirkusdýr og sölukonu í Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar ásamt stöllunum Elvu Björk Ágústsdóttur sálfræðikennara og Sigrúnu Daníelsdóttur sálfræðing en þær eru báðar í stjórn Samtaka um líkamsvirðingu. Loks verður Elísabeth Ingimundardóttir ráðgjafi í átröskunarteymi Landspítalans tekin tali.
Kvennaráð eru frumsýnd klukkan 20:30 í kvöld.
Smelltu til að horfa á klippur úr þættinum: