Langtímaspá Veðurstofunnar gerir ráð fyrir fremur stilltu og víðast hvar mjög björtu veðri um áramótin. Á Gamlársdag, sem ber upp á fimmtudag í næstu viku, er útlit fyrir fremur hægum suðlægum áttum og stilltu vetrarveðri.
Spáin er svo að segja sú sama fyrir Gamlársdag og Nýársdag; éljagangur verður líklega einhver á annesjum suðvestanlands, vestanlands og um suðaustanvert landið, en höfuðborgarsvæðið ætti að mestu að vera laust við úrkomu.
Bjartviðri verður á Norður- og Austurlandi. Frostið bítur eitthvað, verður 1 til 12 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan.