Útlit fyrir 300 milljarða hækkun lána

Margt bendir til þess að verðtryggð lán heimilanna hækki um meira en 300 milljarða á næstu þremur árum. Eins lítur út fyrir að afborgun af óverðtryggðu 15 milljóna króna láni hækki um 55 þúsund krónur á mánuði.
 
Þetta er niðurstaðan af mikill launahækkun á opinberum og almennum vinnumarkaði sem þegar hefur verið samið um og útlit er fyrir að verði samið um á næstu vikum. Augljóst þykir að allir þeir samningar, sem virðast vera umfram getu samfélagsins, verði mjög verðbólguhvetjandi og haldi vöxtum ennþá mjög háum hér á landi.
 
Sérfræðingar í efnahagslífinu spá því að verðbólgan, sem að undanförnu hefur mælst um 2%, geti nálgast 10% á samningstímanum á næstu misserum, en þeir samningar sem hafa verið gerðir að undanförnu gilda flestir hverjir til loka árs 2018. Þessi þróun merkir með öðrum orðum að hækkun lána og afborgana étur upp ávinninginn af þeir kjarabótum sem náðst hafa fram síðustu mánuði - og hefur þá sú barátta verið til lítils.
 

Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins tekur undir þessar vangaveltur á fréttavef RÚV. Ef svo fari fram sem horfi að allar stéttir fái 8-10% launahækkanir á ári án þess að baki þeim liggi framleiðniaukning í hagkerfinu, þá sé það óumflýjanlegt að verðbólgan rjúki upp. Það þýði svo aftur verulega hækkun á verðtryggðum lánum og mun þyngri greiðslubyrði óverðtryggðra lána. Seðlabankinn muni auðvitað reyna að koma í veg fyrir að þetta verði svona slæmt, en eftir sé að sjá hvaða áhrif stýrivaxtahækkanir muni hafa.