Útlendingastofnun taldi að 50 manns væru að sækja um nám á fölskum forsendum

Útlendingarstofnum var ekki heimilt að meina 50 manns frá Bangladess að koma til landsins til að stunda nám við Háskólann á Bifröst. Þetta kemur fram í úrskurði kærunefndar útlendingamála. Taldi Útlendingastofnun að allir nemendurnir væru að sækja um námið á fölskum forsendum. Engin önnur rök fylgdu þó niðurstöðu Útlendingastofnunar. 
 
Háskólinn í Bifröst hefur frá árinu 2017 boðið upp á námsleiðir þar sem allt nám fer fram á ensku. Nemendur sem sækja um námið þurfa að uppfylla skilyrði skólans um inngöngu. Í samtali við Hringbraut segir Leifur Runólfsson, lögmaður umsækjendanna, að allir umsækjendur hefðu uppfyllt öll þau skilyrði sem sett eru fyrir nemendur utan EES að sækja um nám á Íslandi. Furðar hann sig á því að eina röksemdafærslan sem Útlendingastofnun færir fyrir niðurstöðu sinni sé að einhverjir af þessum 50 nemendum séu að sækja um á fölskum forsendum. „Þeir ákveða að láta þessa ákvörðun gilda fyrir alla umsækjendur eingöngu vegna mögulegan gruns á örfáum,“ segir Leifur.
 
Vonast Leifur til þess að allir 50 umsækjendur geti nú fengið samþykki hjá Útlendingastofnun og hafið nám á Bifröst næstkomandi haust.