Útlendingastofnun líkt við gestapo

“Við mótmælum að Christian Boadi verði sendur án rökstuðnings úr landi!” Er yfirskrift fjöldamótmæla sem boðuð hafa verið klukkan 16 í dag, fimmtudag. Mótmælt verður fyrir framan Útlendingastofnun, Bollagötu, en sjaldan hafa Kristín Völundardóttir og hennar starfsmenn hjá Útlendingastofnun legið undir eins harðri gagnrýni. Lesa má um mótmælin fyrirhuguðu hér.

Samtökin ‘78 hafa sent frá sér harðorða yfrlýsingu, en einn þeirra a.m.k. sem senda á burt úr landi eftir langa dvöl hér er samkynhneigður. Samfélagsmiðlar loga vegna málsins. Viðar Eggertsson leikari með meiru skrifar á facebook þar sem hann deilir frétt Vísis um málið: “Maðurinn er með gilt atvinnu- og dvalarleyfi. Hefur komið sér fyrir og staðið sig vel. Nú vill Útlendingastofnun flæma hann úr landi, en gerir engar athugasemdir við innflutt vinnuafl sem haldið er á þrælakjörum á starfsmannaleigum, sem flestar eru reknar af „sönnum Íslendingum\". Svona þjóðfélag viljum við ekki. SVEI!”

Snorri Ásmundsson myndlistarmaður gengur langt líkingamálinu í sinni færslu á facebook: “Útlendingastofnun virðist hafa tekið Donald Trump sér til fyrirmyndar. Þetta er nú meira liðið. Það þarf að senda Kristínu Völundardóttur allslausa og vegabréfslausa til Sýrlands til að læra eitthvað annað en frá Gestapo.”

Lana Kolbrún Eddudóttir nemi og dagskrárgerðarmaður bendir á mótsagnirnar með því að vísa til frétta Rúv í kvöld:

“Hvað gengur ekki upp í þessari jöfnu?

Ein frétt kl. sex: Lögreglan tekur að sér fyrir hönd Útlendingastofnunar að færa þrjá eða fjóra, eða kannski tvo, hælisleitendur úr landi strax í fyrramálið. Einn er búinn að búa hér í fjögur ár, er í vinnu, hefur dvalarleyfi og er að læra íslensku.

Önnur frétt kl. sex: Verið að flytja inn 1.500-2.000 Pólverja til að bregðast við sturlaðri aukningu umferðar um Keflavíkurflugvöll. Ekki til nóg af starfsmönnum á Íslandi, ekki einu sinni í Reykjanesbæ þar sem svo margir voru atvinnulausir fyrir kortéri síðan.”