Föstum skotum er skotið að Útlendingastofnun í leiðara Fréttablaðsins í dag. Magnús Guðmundsson blaðamaður skrifar leiðarann sem fjallar um fjölskylduna frá Albaníu sem var í liðinni viku synjað um dvalarleyfi á Íslandi.
Leiðarahöfundur rekur að fjölskyldan sé ekki metin sem flóttafólk en hrekur það mat Útlendingastofnunar með ýmsum dæmum:
„Það hefur reyndar komið fram að í fjölskyldufaðirinn, sem er sonur fyrrverandi foringja í kommúnistaflokknum, hafi orðið fyrir skotárás, húsið hefur verið tekið eignarnámi, börnunum hefur verið neitað um skólavist og fjölskyldan hefur ávallt verið sett aftast í röðina á heilsugæslu og svo mætti áfram telja. En þetta virðist þó ekki duga Útlendingastofnun. Þar þarf meira til. Kannski nokkur skotsár eða vottorð upp á að viðkomandi hafi mátt sæta pyntingum eða einhverju viðlíka.“
Þá segir leiðarahöfundur: „Á undanförnum árum hafa ákvarðanir Útlendingastofnunar ítrekað vakið hneykslan og reiði almennings á Íslandi. Þjóðin stendur í sífelldum undirskriftasöfnunum, beiðnum, áskorunum og guð má vita hverju en stofnunin hefur staðið fast á stífu regluverki sama á hverju dynur.“
Þótt reglur geti vissulega verið góðar til síns brúks séu þær þó ekki mikilvægari en manneskjur. „Ólöf Nordal innanríkisráðherra hefur því einstakt tækifæri til þess að hafa áhrif á líf þessa fólks og reyndar fjölmargra fleiri til betri vegar. Hún hefur tækifæri til þess að gera það sem fyrirrennarar hennar hefðu kannski átt að gera fyrir margt lifandis löngu en það er að sjá til þess að það sé samræmi á milli þeirrar mennsku og þess kærleiks sem þjóðin hefur að gefa og þeirra áherslna sem Útlendingastofnun vinnur eftir. Sé svigrúmið ekki til staðar innan ramma laganna þá er verkefnið einfaldlega að breyta lögunum. Það má ekkert vera ómögulegt þegar kemur að velferð fólks við þessar aðstæður.“
Og Magnús endar pistil sinn svona:
„Eins og staðan er í dag virðist manni helst að Útlendingastofnun sé á endalausum flótta undan mennskunni. Öllum er vísað úr landi sem mögulegt er að vísa úr landi. Allt í krafti regluverksins á kostnað mennskunnar. Þessu verður að linna og það strax,“ skrifar Magnús Guðmundsson leiðarahöfundur Fréttablaðsins en pistil hans má í heild lesa hér.