Útlendingar skilja ekki íslensk höft

\"Vandamálið við gjaldeyrishöftin er að það skilur þau enginn á Vesturlöndum,\" sagði Jón Sigurðsson forstjóri Össurar í sjónvarpsþættinum Fólk og frumkvæði á Hringbraut á þriðjudagskvöld en hann fjallar um íslenska nýsköpun í útrás.

Fá íslensk fyrirtæki hafa haslað sér jafn stóran völl í útlöndum og stoðtækjaframleiðandinn Össur á síðustu árum, en fyrirtækið er orðið gríðarlega umsvifamikið á sínu sviði í heiminum. 

Jón sagði í þættinum, sem stjórnar er af Sölva Tryggvasyni að mjög erfitt væri orðið að reka alþjóðlegt fyrirtæki á Íslandi í ljósi veiks gjaldmiðils sem þarf til langs tíma á einhvers konar höftum og hjálparmeðulum að halda: \"Fyrir 40 til 50 árum voru lönd eins og Bretland, Frakkland og Þýskaland í gjaldeyrishöftum sjálf og þá var allt kerfið vant þessu. Núna er það ekki - og það er mjög erfitt að útskýra þetta ástand fyrir mótaðilanum í viðskiptalífinu nú á dögum,\" sagði Jón.

Fyrir vikið, sagði hann, eiga fyrirtæki á borð við það sem hann rekur mjög erfitt með að vaxa og dafna innan svona hagkerfis eins og þekkist hér á landi.

Sjá má þáttinn hér.