Útlendingar selja landið undir virkjun

Átökin um landið og náttúrugersemar þess eru aðalstefið í Ritstjóraþætti kvöldsins þar sem tveir fyrrverandi ritstjórar DV, Páll Baldvin Baldvinsson og Reynir Traustason mæta og rýna í fréttamál líðandi stundar.

Reynir er nýkominn að vestan, hvar hann var skálavörður í Norðurfirði og leiðsögumaður á svæðunum í kring, en honum tókst að senda út myndir frá fegurstu fossunum í Evindarstaðaá í samnefndum firði norðan Ófeigsfjarðar í sumar í beinni útsendingu, við litla hrifningu virkjanasinna vestra, en tíu þúsund manns hafa nú þegar lækað færsluna.

Reynir lýsir vel innansveitarkrónikunni vestra þar sem heimamenn eru þverklofnir í afstöðu sinni til Hvalárvirkjunar - og upplýsir meðal annars að útlendingur sem keypti lönd í Eyvindarfirði fyrir 25 milljónir króna í nafni umhverfisverndar hafi selt enn öðrum útlendingum vatnsréttindin þar þegar eftir því var leitað. Þetta sýni vel hvað eignarétturinn á landi er viðkvæmur, en bæði Reynir og Páll Baldvin eru sammála um að sofandaháttur landsmanna í þessum efnum sé áberandi. Þó megi greina vatnaskil í umræðunni um stóriðjustefnu og söluna á orku landsins á tombóluprís til útlendra iðjuhölda vegna ófara forkólfa United Silicon suður með sjó, þar sem eiturspúandi verksmiðja hafi ofboðið öllu venjulegu fólki - og gott ef ekki pólitíkinni allri sömuleiðis.

Flokkur fólksins berst í tal og ástæður velgengni hans, svo og einkavæðing heilbrigðisþjónustunnar, þvert á vilja langstærsta hluta þjóðarinnar - og svo er það laxveiðin í boði Íslandsbanka, eða eins og Reynir bendir á; sjá menn ekki veisluna sem er byrjuð á ný - og Páll Baldvin botnar umræðuna; gullfiskaminni Íslendinga er samt við sig ...

Ritstjórarnir byrja klukkan 21:00.