Það er ógn við jarðvarmaiðnað á Íslandi að erlend fyrirtæki eigi öll einkaleyfi á aðferðum í iðnaðinum og séu með 45 slík leyfi í vinnslu, á sama tíma og íslensk fyrirtæki sækja ekki um nein slík leyfi, að því er fram kemur á ruv.is.
Þetta segir framkvæmdastjóri hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Skoða verði málið mjög alvarlega. Íslendingar eiga engin einkaleyfi á aðferðum til að nýta jarðvarma hér á landi, og eru ekki með nein slík leyfi í vinnslu. 45 erlendar umsóknir um einkaleyfi eru hins vegar í vinnslu. Forstjóri Einkaeyfastofu sagði í fréttum í gær að þetta gæti endað með því að Íslendingar þyrftu að borga útlendingum fyrir að vinna jarðvarma hér á landi.
\"Þetta voru auðvitað sláandi fréttir. Íslenski jarðvarmageirinn hefur starfað mjög opið. Samvinna hefur verið mjög virk í gegnum árin og áratugina. Og það hefur ekki verið lenskan að sækja um einkaleyfi fyrir þeim framþróunum sem hafa vissulega átt sér stað á Íslandi. En þetta er auðvitað eitthvað sem við þurfum að skoða núna í ljósi þessara nýju frétta,“ segir Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastjóri þróunar hjá Orkuveitu Reykjavíkur við vefinn í dag, en Orkuveitan er stærsta fyrirtæki í jarðvarmavinnslu hér á landi.