Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandskjördæmi, hafnar ásökunum samflokksmanns síns, Ásmundar Friðriksson, að nýju útlendingalögin hafi verið óvönduð og þeirra vegna komi hingað fólk til að njóta kerfis hér, kerfis sem íslenskum ríkisborgurum stendur ekki til boða.
Unnur Brá undirbýr kosningar, en framundan er prófkjörsbarátta, þar sem allir fjórir þingmenn flokksins í kjördæminum sækjast eftir endurkjöri og í dag bættist fyrrverandi þingmaðurinn, Árni Johnsen, við hópinn.