Útlán banka vaxa hratt

Lán­taka fólks og fyr­ir­tækja hjá íslenskum banka­stofn­unum hefur ekki auk­ist jafn­hratt frá hruni, ef miðað er við árs­grund­völl. Þetta kemur fram ef rýnt er í hag­tölur Seðla­banka Íslands sem birt­ust í gær. 

Sam­kvæmt hag­töl­unum aukast umsvif íslenskra banka nokkuð milli mán­aða, en í júní  námu eignir inn­láns­stofn­anna tæpum 3.600 millj­örðum króna og hækk­uðu um 48,2 millj­arða frá mán­uð­inum á und­an. Þar af námu inn­lendar eignir um 3.200 millj­örð­um, en erlendar eignir um 401 millj­örð­um. Inn­lendar skuldir hækk­uðu um 42,2 millj­arða í mán­uð­inum og námu 2.329 millj­örð­um, en erlendar skuldir námu 653,7 millj­örðum og hækk­uðu um 456 millj­ón­ir.

Nánar á


https://kjarninn.is/frettir/2018-07-24-utlan-bankanna-ekki-vaxid-jafnhratt-fra-hruni/