Ógreiddar sektir sex milljarðar króna

Árangur við innheimtu sekta hér á landi er afleitur. Aðeins um fjórða hver króna innheimtist hér á landi vegna sekta. Í Noregi innheimtast 97% af fjárhæðum allra sekta.

Þetta kom fram í framsögu Ólafar Nordal innanríkisráðherra vegna lagafrumvarps um breytta fullnustu refsinga.

Ólöf sagði að munurinn á árangri við innheimtu sekta, annars vegar hér og í Noregi, vekti athygli. Augljóslega þyrfti að rýmka innheimtuheimildir frá því sem nú er til að bregðast við þessu árangurleysi.

Í Noregi flokkast undir frávik ef sekt er ekki greidd. Hér er niðurstaðan 25-35%. Útistandandi sektir nema alls tæpum sex milljörðum króna hér á landi eftir því sem fram kom í máli ráðherra.