Fjármálaráðherra Bjarni Benediktsson segist ekki geta fullyrt neitt um hvort fleiri ráðherrar en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson eigi eignir á Tortóla. Þetta kom fram í fyrirspurnatíma á Alþingi í morgun.
Ásta Guðrún Helgadóttir, Pírötum, vildi vita hvort fleiri ráðherrar kynnu að eiga eigur á Tortóla í ljósi upplýsinga af stóreign forsætisráðherrahjónanna sem fyrst bárust upplýsingar um í fyrrakvöld. Fréttir af félaginu á Tortóla kæmu á óheppilegum tima. Nú stæði yfir vinna að klára mál sem vörðuðu slit föllnu bankanna. Hún vildi vita hvort Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefði setið beggja megin samningaborðsins vegna kröfu í bankana og hins vegar sem forsætisráðherra. Þingmaðurinn vildi sérstaklega vita hvort fleiri aðilar hefðu mögulegra sérhagsmuna að gæta og spurði sérstaklega um aðra ráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra svaraði að hann ætti erfitt með að svara spurningunni, hann hefði ekki upplýsingar til að bregðast við. Hann gæti ekki fullyrt neitt um stöðu einstakra ráðherra, hvort þeir ættu eignir á Tortóla, en taldi að eignir ráðherra í útöndum þyrftu ekki að kalla á hagsmunaárekstur gagnvart þrotabúum íslensku bankanna.