Úthafsrækjustofninn við Ísland, sem verið hefur í lægð á síðustu árum, hefur aldrei mælst minn i frá því mælingar á honum hófust árið 1988. Þetta er niðurstaða leiðangurs rannsóknarskipsins Bjarna Sæmundssonar sem er nýlokið.
Þéttleiki rækju var tiltölulega jafn en lítill yfir nær allt rannsóknasvæðið með þeirri undantekningu að nánast ekkert fannst austast á svæðinu. Líkt og verið hefur í meira en áratug mældist lítið af ungrækju og sýna niðurstöðurnar að nýliðun er áfram mjög slök.
Mikið var af þorski á öllu rannsóknasvæðinu. Þorskseiði fengust í nær öllum togum vestan við Grímsey, en aldrei hefur fengist jafn mikið af þorskseiðum í úthafsrækjuleiðangri og í ár. Hins vegar var magn grálúðu mjög lítið.