\"Við hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi höfum ekki áhuga á því að leggjast í skotgrafahernað við einstaka menn eða ráðuneyti, við gerum okkur vel grein fyrir því hve flókin staða þetta er,\" skrifar Kolbeinn Árnason framkvæmdastjóri SFS í Fréttablaðið í dag.
Hann vill að stjórnvöld og hagsmunaaðilar í sjávarútvegi leiti sameiginlegra lausna vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í útflutningi íslensks sjávarfangs til Rússlands, eins mikilvægasta markaðar landsmanna sem nú sé lokaður. Hann segir útgerðarmenn óska þess að unnið sé í friðsemd að því að gera sem best úr stöðunni þar sem íslenskir hagsmunir verði hafðir að leiðarljósi.
Útgerðarmenn hafa verið harðlega gagnrýnir fyrir að vilja taka fjárhagslega hagsmuni sína og stundargróða fram yfir utanríkisstefnu Íslands og kúvenda afstöðu Íslendinga í mannréttindamálum. Þosteinn Pálsson fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins hefur skrifað í þá veru hér á Hringbraut og þá hefur Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra krafist þess af útgerðarmönnum að þeir líti upp úr klofinu á sér og sýni samfélagslega ábyrgð.
Kolbeinn segir óskir Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi ekki fela í sér kröfu um breytingar á utanríksisstefnu Íslands, aðeins að því að stjórnvöld taki tillit til íslenskra viðskiptahagsmuna sem séu ærnir og meiri en þekkist á meðal annarra þjóða sem þvingi nú Rússa til að láta af hernaði á hendur nágrönnum sínum í Úkraínu: \"Mér er það til efs,\" skrifar Kolbeinn \"að nokkurt annað land verði fyrir jafn alvarlegum efnahagslegum afleiðingum þessara viðskiptaþvingana sem önnur lönd h0nnuðu á grundvelli sinna hagsmuna.\"
Hann bendir á að önnur evrópsk ríki fái áfram að flytja inn vörur sínar til Rússlands, svo sem þýska Siemens sem sé að gera 40 ára þjónustusamning við Rússa á meðan allt sé lok og læs gagnvart íslenskum sjávarafurðum á sama markaði, en komið hefur fram að þar sé na´lægt 40 milljarðar í húfi fyrir Íslendinga á ári.
\"Hagsmunir Íslendinga í þessu máli tengjast ekki einungis hagsmunum nokkurra fyrirtækja í sjávarútvegi,\" skrifar Kolbeinn og segir þá miklu fremur varða þjóðarhag: \"Í húfi er fjöldi starfa, gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins, afkoma sveitarfélaga víða um land, afkoma fyrirtækja sem skila samfélaginu stórum hluta tekna sinna sem við byggjum velferð okkar á.\"
Í þessu ljósi sé eðlilegt að stjórnvöld hafi samráð við þjóð sína þegar svo mikið sé í húfi.