Þorsteinn Pálsson segir að krafa útgerðarinnar um kúvendingu utanríkispólitík Íslands, svo hagmunum sjávarútvegs sé gætt, jafngildi tilkalli um afsögn utanríkisráðherra.
Þorsteinn Pálsson sem er bæði fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, forsætisráðherra og síðar sjávarúrvegsráðherra undrast stórum þessa nýtilkomnu hentistefnu útgerðarinnar á Íslandi - og skrifar um hana í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is. Viðskiptaþvinganir séu vissulega alltaf tvíeggja sverð, en þegar komi að grundvallarafstöðu í utanríkispólitík geti menn ekki bara hagað segli eftir vindum, framganga Rússa gagnvart Úkraínu hafi verið slík ögrun gagnvart þjóðum Evrópusambandsins og Atlantshafsbandalagsins að viðbrögð af einhverju tagi hafi verið óhjákvæmileg.
\"Það hefði verið fráleitt að skerast úr leik þegar bandalagsþjóðirnar tóku þessa ákvörðun,\" skrifar Þorsteinn og bætir við: \"Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi þurfa að svara þeirri spurningu hvort þau telja í raun og veru að það svari framtíðarhagsmunum sjávarútvegsins að losa með þeim hætti um pólitíska stöðu Íslands á mörkuðum í Evrópu og Ameríku.\"
Og kröfu útgerðar verði að skoða í stærra ljósi: \"Eftir að sjávarútvegurinn hefur stigið þetta stóra skref til að breyta grundvallaratriðum í utanríkisstefnu landsins komast Samtök atvinnulífsins heldur ekki hjá því að svara fyrir atvinnulífið í heild.\"
Svo megi ekki gleyma stöðu Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra sem Þorsteinn hrósar í pistli sínum fyrir staðfestu í málinu: \"Þegar Rússar byrjuðu að sýna Úkraínumönnum vígtennurnar fyrir alvöru fór ráðherrann ítrekað til Úkraínu til þess að sýna samstöðu og stuðning íslensku þjóðarinnar. Ekkert var til sparað, hvorki í stórum orðum né ferðakostnaði. Þegar þetta er haft í huga er augljóst að sjávarútvegurinn gengur svo langt í kröfum um stefnubreytingu að utanríkisráðherra með sjálfsvirðingu gæti ekki setið ef ríkisstjórnin yrði knúin til rjúfa samstöðu bandalagsþjóðanna, skrifar Þorsteinn.
Gunnar Bragi þurfi fráleitt að taka pokann sinn, en útgerðin verði hins vegar að hugsa sinn gang: \"Lengi vel var unnt að setja jafnaðar merki milli málflutnings sjávarútvegsins og þjóðarhagsmuna. Þetta mál sýnir að svo er ekki lengur. Það er mikil breyting.\"