Útgerðin leikur á alþingi eins og gítar!

\"Rússland er dæmi um land þar sem lýðræðið stendur höllum fæti m.a. vegna ásóknar óbilgjarnra manna í olíurentuna. Ísland sýnist vera á sömu leið. Hér er lýðræðið í uppnámi.\"

Þetta skrifar Þorvaldur Gylfason, prófessor við Háskóla Íslands í grein sinni í Fréttablaðinu í dag sem hann nefnir Hver hirðir rentuna? Þar fjallar hann um muninn á einræðisríkjum og lýðræðisríkjum þegar kemur að hlutdeild samfélagsins í auðlindarentum. Hún fari því minnkandi eftir því sem lýðræðið sé minna. 

\"Íslendingar eiga sameiginlega tvær verðmætar náttúruauðlindir sem gefa af sér ríkulega rentu,\" skrifar Þorvaldur og bætir við að sjávarauðlindin gefi af sér rentu sem nemi um 2% til 3% af landsframleiðslu að því er rannsóknir allar götur aftur til árdaga kvótakerfisins á 9. áratug síðustu aldar sýni - og vitnar prófessorinn þar m.a. til mats Þjóðhagsstofnunar á sínum tíma.

Hann bendir á að hér á landi falli 10% rentunnar af sjávarauðlindinni til réttra eigenda hennar \"í gegnum smávægileg veiðigjöld frá 2002. Afgangurinn, 90% af rentunni, rennur til útvegsmanna sem hegða sér þótt fáir séu eins og ríki í ríkinu og leika á Alþingi eins og gítar.\"

Hann segir þetta atriði á meðal brýnustu lýðræðismála Íslendinga, vilji þeir styrkja lýðræði í sessi, en tölur af þessu tagi séu faldar í bókhaldi þjóðarinnar af einhverjum sökum: \"Þessar tölur um verðmæti auðlindanna, auðlindarentuna og skiptingu hennar eru meðal verðmætustu hagtalna og ættu því að vera aðgengilegar á vefsetri Hagstofu Íslands. Þar er þessar tölur ekki að finna heldur þurfa menn að grafa þær upp úr gögnum hagfræðinga utan stjórnsýslunnar,\" skrifar Þorvaldur Gylfason í grein í Fréttablaðinu í dag.