Útgerðin „kaupir upp atvinnulífið“

Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, segir það liggja fyrir að samhliða því sem útgerðin hefur blásið út og hagur hennar vænkast til mikilla muna þá hafi virði sameiginlegrar auðlindar þjóðarinnar stóraukist.

„Núverandi ríkisstjórn virðist ekki telja svo heldur taldi nauðsynlegt að lækka veiðigjöld á sama tíma og þessi þróun er að eiga sér stað. Það er auðvitað hjákátlegt að halda því fram að útgerðin geti ekki greitt eðlilegt verð fyrir aðgang að sameiginlegri auðlind landsmanna á sama tíma og hún er að kaupa upp atvinnulífið,“ segir Þorsteinn á Facebooksíðu sinni.

Nánar á

http://www.visir.is/g/2019190209890