Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, sem var gestur Ritstjóranna á Hringbraut í vikunni furðaði sig stórum á framferði útgerðarinnar í þvingunaraðgerðum Evrópu- og Nató-þjóða gagnvart Rússum og sagði hana vilja taka sérhagsmuni sína fram yfir þjóðarhagsmuni.
Hann hrósaði Gunnar Braga Sveinssyni, utanríkisráðherra á hvert reipi fyrir að standa fast í lappirnar í þessu máli og undir það tók sessunautur hans í þættinum, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, fréttastjóri Fréttatímans sem sagði ráðherrann hafa styrkst stöðu sína andspænis stundarhagsmunum útgerðarinnar og hálfrar ríkisstjórnarinnar, enginn ráðherra hefði komið jafn mikið á óvart og Gunnar Bragi sem væri búinn að ávinna sér mikla virðingu þjóðar sinnar fyrir vikið.
Þórði Snæ fannst furðulegt að útgerðin væri að kvarta sáran í þessum efnum, því hér væri um algert grundvallarmál í utanríkismálum að ræða - og samhengið væri þetta: \"Við búum hérna á pínkulítilli eyju úti í Ballarhafi, veiðum fisk í risastórri lögsögu og höfum treyst á samskipti og samstarf við aðrar þjóðir svo við getum verndað okkar hagsmuni. Við erum að flytja 70 til 80% af okkar útflutningi inn á innri markað Evrópu og annað eins af innflutningi þaðan - og þar eru sannarlega okkar mikilvægustu viðskiptahagsmunir komnir. Það að við sýnum það í verki að við stöndum hlið við hlið með okkar helstu bandalagsþjóðum í Evrópu og innan Nató gegn því að landamæri séu virt, eins og á við í þessari deilu, er ekki bara algert grundvallaratriði fyrir litla herlausa þjóð heldur beinlínis forsenda fyrir því að hún geti farið fram á það sama við aðra, sumsé að samningar og mörk séu virt,\" sagði Þórður Snær.
Og hann hrósaði Gunnar Braga: \"Mér hefur fundist hann standa þessa vaktina rosalega vel og af gríðarlegri ákveðni, meðal annars með því að svara útgerðinni fullum hálsi þegar hún hefur verið hvað hvössust,\" og Þórður beindi nokkrum vel völdum orðum til útgerðarinnar af þessu tilefni, því hér færi hún fram af miklum ákafa til að vernda sérhagsmuni sína, útgerð sem hefði hagnast gríðarlega á undanförnum árum, eða sem næmi 480 milljörðum á árabilinu 2009 til 2014 og væri að greiða sér ofboðslegan arð: \"Svona talar áhrifamesta fólk á Íslandi, það langáhrifamesta, fólk sem er orðið ævintýralega ríkt á evrópskan mælikvarða, en reynir samt sem áður að keyra það í gegn að Ísland sem ríki taki þeirra hagsmuni fram yfir þjóðarhagsmunina.\"
Gegn þessu valdi stæði Gunnar Bragi og hefði réttilega beint á það í viðtölum, að ef þessir aðilar ætluðu að láta svona, væri auðvitað spurning hvort þeim væri þá treystandi fyrir þjóðarauðlindinni - \"og ég var líka mjög ánægður með það þegar hann hjólaði í ákveðna þingmenn sömu skoðunar og sagði þá greinilega vera borgaða af útgerðinni,\" bætti Þórður Snær við í þættinum sem hægt er að skoða í heild sinni hér á vef stöðvarinnar.
Hann sagði að kannski hefðu fáir átt von á þessu frá Gunnari Braga þegar hann tók fyrst við ráðherradómi - og sjálfsagt hefði einhverjiir hlegið þá, en gerðu það ekki núna.
Ritstjórarnir, sem hægt er að nálgast hér á vef stöðvarinnar, eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00 og endursýndir á laugardags- og sunnudagskvöld.