Ég verð að segja að ég er ansi undrandi á því hversu margir áhrifamenn í Sjálfstæðisflokknum hafa snúið baki við vestrænni samvinnu á sviði öryggis- og varnarmála, segir Jón Steinsson hagfræðingur í nýrri fésbókarfærslu.
Hér talar fyrrverandi efnahagsráðgjafi í ríkisstjórn Geirs H. Haarde sem undrast stórum að Sjálfstæðismenn gefi því nú undir fótinn að Ísland eigi að snúa baki við vestrænni samvinnu.
\"Krosstrén í stefnu Sjálfstæðisflokksins virðast vera að fúna og bresta hvert af öðru vegna þrýstings frá eigendum útgerðarfyrirtækja,\" skrifar Jón og metur það svo að þótt markaðshyggja í stefnu flokksins sé náttúrulega löngu farin, þá sæti hitt meiri tíðindum, eða svo vitnað sé í hans eigin orð: \"En að samvinna við vestræn lýðræðisríki á sviði öryggis- og varnarmála sé líka eitthvað sem menn eru tilbúnir að kasta fyrir róða er með hreinum ólíkindum, sérstaklega í ljósi þess hvað Ísland á mikið undir því að stærri ríki ábyrgist öryggi okkar.\"