Útgerðarmaður skattakóngur ársins

Þórður Rafn Sig­urðsson, út­gerðarmaður í Vest­manna­eyj­um, greiðir mest­an skatt Íslend­inga, sam­kvæmt yf­ir­liti frá rík­is­skatt­stjóra um álagn­ingu ein­stak­linga 2015. Þórður Rafn greiðir tæp­lega 672 millj­ón­ir króna í skatta.

Athygli vekur að aðeins þrjár konur eru á lista yfir 20 hæstu gjaldendur skatta á Íslandi í ár; Guðbjörg M. Matthíasdóttir í Eyjum, María Vigdís Ólafsdóttir á Seyðisfirði og nafna hennar Rúnarsdóttir í Kópavogi.

Þetta kemur fram á mbl.is í dag en þar segir að næsthæstu gjöld­in greiðir Þor­steinn Sig­urðsson sem greiðir tæp­lega 305 millj­ón­ir króna. 

Þriðji hæsti greiðand­inn er Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskr­ar erfðagrein­ing­ar, en hann greiðir rúm­lega 277 millj­ón­ir króna í skatta. Gunn­ar Torfa­son greiðir tæp­lega 181 millj­ón­ króna í skatta. 

Jón A. Ágústs­son fram­kvæmda­stjóri var skattakóng­ur Íslands í fyrra. Hann greiddi þá tæp­lega 412 millj­ón­ir króna í skatta. Jón er hins veg­ar ekki á lista rík­is­skatt­stjóra yfir hæstu gjald­end­ur í ár sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrá.

Sam­kvæmt 1. mgr. 98. gr. laga nr. 90/​​2003 um tekju­skatt með áorðnum breyt­ing­um, skal rík­is­skatt­stjóri leggja fram og hafa til sýn­is álagn­ing­ar­skrár. Liggja þær frammi á starfs­stöðvum embætt­is­ins um allt land næstu tvær vik­ur eða til 7. ág­úst. Kæru­frest­ur renn­ur út 24. ág­úst.

Listi yfir tutt­ugu hæstu gjald­end­ur:

1 Þórður Rafn Sig­urðsson Vest­manna­eyj­ar 671.565.763

2 Þor­steinn Sig­urðsson Hafn­ar­fjörður 304.633.336

3 Kári Stef­áns­son Reykja­vík 277.499.661

4 Gunn­ar Torfa­son Reykja­vík 180.939.049

5 Davíð Freyr Al­berts­son Kópa­vog­ur 173.206.913

6 Bert Mart­in Han­son Reykja­vík 140.284.145

7 Jón Guðmann Pét­urs­son Kópa­vog­ur 136.371.742

8 Guðbjörg M Matth­ías­dótt­ir Vest­manna­eyj­ar 127.296.164

9 Árni Harðar­son Reykja­vík 121.618.964

10 Kristján V Vil­helms­son Ak­ur­eyri 110.473.857

11 Stefán Hrafn­kels­son Reykja­vík 103.185.589

12 Ad­olf Guðmunds­son Seyðis­fjörður 102.093.894

13 Grím­ur Karl Sæ­mundsen Reykja­vík 96.753.634

14 Guðjón Harðar­son Seyðis­fjörður 96.516.183

15 María Vig­dís Ólafs­dótt­ir Seyðis­fjörður 94.486.876

16 Pat­rick Maurice Franzo­is Su­lem Reykja­vík 92.690.395

17 Þor­steinn Már Bald­vins­son Ak­ur­eyri 92.393.574

18 María Rún­ars­dótt­ir Kópa­vog­ur 91.786.379

19 Gunn­ar Guðmunds­son Reykja­vík 82.125.263

20 Jákup Na­po­leon Purk­hús Reykja­vík 76.501.686