Kristín Þorsteinsdóttir, útgefandi og leiðarahöfundur Fréttablaðsins, gagnrýnir Morgunblaðið og RÚV fyrir að fjalla of mikið um Aurum-málið og veltir því upp hvort kappið hafi borið skynsemina ofurliði í rannsóknum og ákærum gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og fleirum. Þá finnur hún að því hve miklum fjármunum hefur verið varið til sérstaks saksóknara og reksturs dómsmála sem tengjast hruninu og veltir því fyrir sér hvort dómarar á Íslandi hafi „fallið í þá gryfju að dæma eftir almenningsálitinu“.
Þetta kemur fram í leiðara Kristínar í helgarblaði Fréttablaðsins, blaðs sem er nær alfarið í eigu félaga Ingibjargar S. Pálmadóttur, eiginkonu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Jón Ásgeir og fleiri sakborningar í Aurum-málinu voru sýknaðir í Landsrétti í síðustu viku, en fyrst var ákært í málinu árið 2012.
„Fjölmiðlar hafa eytt ófáum dálksentimetrum í málið. Vefsíða Morgunblaðsins tileinkar því sérstaka síðu. Þar eru 185 fréttir,“ skrifar Kristín. „Morgunblaðið taldi líka tilefni til þegar fjallað var um málið í síðasta sinn fyrir dómstólum að birta umfangsmikla umfjöllun um málið á heilli opnu í blaðinu. Forsíða blaðsins þann dag var tilvísun í yfirheyrslur sem áttu sér stað árið 2011.
Nánar á
https://stundin.is/grein/7712/
RÚV hefur heldur ekki látið sitt eftir liggja.“