Jónas Sigurgeirsson, útgefandi bókar Ásgeirs Jónssonar, seðlabankastjóra Íslands, Eyjans hans Ingólfs, er alsæll með umtalið um bók Ásgeirs.
„Er illt umtal betra en ekkert umtal eins og sagt er?“ svona hefst færsla Jónasar á Facebook fyrr í kvöld.
Jónas segir svarið vera já, „því að bókin rokselst!“
Í færslu Jónasar kemur fram að nú sé svo komið að síðustu eintökunum af lagernum verði ekið í verslanir í fyrramálið. Vinsældir bókarinnar séu svo miklar.
Í lok færslunnar segist Jónas gefa ekkert fyrir ásakanir um rit- eða hugmyndastuld Ásgeirs.
„Ekkert. Ég þekki nefnilega Ásgeir og vinnubrögð hans.“