Theresa May birti í gær tvær blaðagrein í bresku dagblöðunum Sunday Telegraph og Sunday Express. Hún staðhæfir að nú færist aftur krafur í Brexit viðræður Breta og Evrópusambandsins (ESB).
Í báðum þessum blaðagreinum er Theresa May bjartsýn á að ríkisstjórn hennar muni takast að ná settu markmiði sem er auðvitað Brexit samningur Breta við ESB sem ekki verður hafnað af neðri málstofu breska þingsins eða höfuðborgum ESB ríkjanna.
Stjórnmálaskýrendur á Stóra-Bretlandi hafa fyrr í dag sagt að Theresa May berjist nú bæði fyrir pólitísku lífi sínu sem leiðtogi Íhaldsflokksins og sem forsætisráðherra.
Niðurstaða stefnumóts ríkisoddvita ESB í Brussel fyrir helgina um Brexit hafi tryggt að Theresa May verður áfram bæði leiðtogi Íhaldsflokksins og forsætisráðherra.