Útflutningur til rússlands tífaldast

Vöruútflutningur frá Íslandi til Rússlands hefur margfaldast síðustu ár að því er fram kemur í nýjum tölum Hagstofu Íslands. Á á síðustu hefur andvirði útflutningsins aukist úr 2,3 milljörðum króna í 29,2 milljarða króna.

Útflutningurinn til Rússlanmds jafngildir nú 4,9% af útflutningstekjum Íslendinga. Stærsti hluti hans er uppsjávarfiskur, aðallega makríll og síld, og fer um þriðjungur af heildarútflutningi á uppsjávarfiski á árinu 2014 til Rússlands.

Innflutningur frá Rússlandi hefur hins vegar haldist frekar stöðugur og var 3,1 milljarðar á árinu 2014 Mest var flutt inn af olíu og álblendi. Vöruskiptajöfnuður við Rússland var því hagstæður um rúma 26 milljarða á árinu 2014, en var óhagstæður um 407 milljónir á árinu 2004.

Hagstofan tekur fram að varðandi áreiðanleika talna hennar um útflutning til Rússlands sé rétt að taka fram að útflytjendum beri að greina frá því í tollskýrslum hvar varan endi. Hagstofan byggir sínar tölur á þeim upplýsingum. Til að draga úr óvissu í þessum efnum hefur Hagstofan hafið rannsókn á nákvæmni upplýsinga um endanlegt ákvörðunarland útflutnings í tollskýrslum. Sú rannsókn beinist þó ekki að Rússlandi sérstaklega heldur fremur að háu hlutfalli Hollands í útflutningsskýrslum.