\"Auðvitað er staðan alvarleg. Við fáum engar tekjur,\" segir Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi Rio Tinto álversins í Straumsvík en boðað útflutningsbann hófst á miðnætti og getur fyrirtækið því ekki flutt vörur sínar á markað.
Óvíst er hvað útflutningsbannið varir lengi og getur það haft afar slæm áhrif á rekstur fyrirtækisins að sögn Ólafs Teits sem telur útlit fyrir að dregið verði úr framleiðslu á næstu dögum.
\"Samkvæmt okkar meiningum eru það bara tveir menn sem mega ganga í störf, það eru forstjórinn og framkvæmdastjóri sviðsins. Aðrir mega það ekki,“ segir Gylfi Ingvarsson, talsmaður starfsmanna Álversins í Straumsvík við RÚV í morgun.
Gylfi segist vona að bannið ýti við viðsemjendum og þeir komi að borðinu og reyni að finna lausnir á deilunni.
Ólafur Teitur er ekki bjartsýnn, segir viðsemjendur hvergi vilja víkja frá kröfum sínum um verktöku utanaðkomandi í fyrirtækinu, en hún er að skapi Rio Tinto en eldur í beinum verkamanna og félags þeirra.