Ekki verður flaggað við andlát framvegis við stjórnsýsluhúsið á Húsavík heldur verður eingöngu flaggað í hálfa stöng við útfarir. Þessi ákvörðun bæjarstjórnar Norðurþings mætir andstöðu.
Morgunblaðið vitnar í frétt sinni um málið í Hjálmar Boga Hafliðason, bæjarfulltrúa í Norðurþingi og varaþingmann framsóknarmanna sem segir að bæjarstjórnin hafi samþykkt í síðustu viku tillögu Hjálmars Boga að hætt yrði að flagga íslenska fánanum við stjórnsýsluhúsið í Húsavík í hálfa stöng við andlát í bæjarfélaginu.
„Mér fannst þessi siður vera orðinn úreltur, enda er þetta samfélag gjörbreytt frá því sem var. Í bæinn hefur flutt fólk sem veit kannski engin deili á hinum látna og túristar voru hissa. Töldu kannski að þjóðhöfðingi væri látinn,“ er haft eftir bæjarfulltrúanum í Mogganum.
Fram kemur í blaðinu að reglan hafi náð til fólks með heimilisfesti í bænum, einstaklinga sem legið hafa á sjúkrahúsinu í bænum og þeirra sem búið hafa fyrr á tíð í kaupstaðnum en eru fluttir á brott.
Ekki eru allir á eitt sáttir um þessa ákvörðun.
Kristján B. Jónasson, bókaútgefandi af skagfirskum uppruna, spyr á facebook: „Hvað varð eiginlega um þingeysku stórmennskuna, ættjarðarstoltið og stórhuginn?“
Séra Baldur Kristjánsson sóknarprestur segir af kaldhæðni: „Stórir erum vér Húsvîkingar!“
Þá skrifar Þráinn Berthelsson rithöfundur: „Það er náttúrulega bara vesen að vera að flagga fyrir fólki sem hefur minna en milljón á mánuði og hefur aldrei fengið mynd af sér í Séð og heyrt.“