Utanvegaakstur: skotarnir skammast sín

Skosku ævintýramennirnir sem ekið hafa um landið með það að markmiði að keyra á fimm eldfjöll gáfu sig fram við lögreglu í dag. Þeir segjast tilbúnir að greiða þær sektir sem þeim ber.
 
Þeir hafa í dag, að því ner fvram kemur á fréttvef RÚV, fleygt út fjölda athugasemda af heimasíðusinni og lokað fyrir frekari athugasemdir frá fólki. Á vefnum segir að mennirnir hafi farið inn á lokuð svæði Holuhrauns og státað sig af því á heimasíðu sinni í gær að þeir hefðu farið tólf kílómetra leið inn að miðju hrauninu.
 
Jeppinn sem þeir ferðast á er mikið breyttur og fréttastofu RÚV hafa borist myndir þar sem hann sést keyra utan slóða. Landverðir hafa farið um svæðið í dag og skoðað vegsummerki eftir mennina. Þeir fundu nokkur merki utanvegaaksturs en eftir á að sanna að þau séu eftir þá. Landverðirnir segja óhugsandi að þeir hafi ekið á Holuhrauni en þeir hafi þó greinilega gengið um svæði sem er lokað.
 

Efir fréttir af ferðum þeirra innan lokaðra svæða og hugsanlegum utanslóðaakstri skrifuðu margir í opið athugasemdakerfi heimasíðunnar. Þar voru þeim ekki vandaðar kveðjurnar. Þar er þeim bent á að það sem þeir séu að gera, mynda og fjalla um sé ólöglegt hér á landi. Þeim er bent á að hafa samband við lögregluna, greiða sektir sínar og koma sér af landi brott og skammast sín.

Eftir hádegi í dag höfðu mennirnir fjarlægt allar færslur sínar um ferðalag sitt um Holuhraun og athugasemdirnar sem skiptu tugum og í staðinn sett inn yfirlýsingu þar sem þeir fullyrða að það sem þeir hafi verið að gera hafi ekki verið ólöglegt. Þá hafa þeir lokað fyrir frekari athugasemdir og fjarlægt myndir.

Aðalsteinn Júlíusson, lögregluvarðsstjóri á Húsavík, segir við RÚV að mennirnir séu staddir vestur á fjörðum, en þeir hafi væntanlega séð þessar miður skemmtilegu athugasemdir og hrokkið dálítið við. Hann gruni að þeir skammist sín svolítið: \"Þeir höfðu samband að fyrrabragði og spurðu hvert þeir ættu að fara til að greiða möglega sekt ef að það lægi fyrir hversu há hún væri\".