Koma tyrkenska landsliðsins í knattspyrnu til Íslands hefur vakið mikla athygli um allan heim. Hafa allar helstu fréttaveitur Evrópu fjallað um komu landsliðsins, þá sérstaklega fréttaveitur í Tyrklandi. Hefur svokallað þvottaburstaatvik vakið mikil viðbrögð í Tyrklandi. Hafa Íslendingar verið ásakaðar í þarlendum fjölmiðlum um kynþáttafordóma. Á heimasíðu KSÍ hafa til dæmis hundruð einstaklinga harðlega gagnrýnt atvikið. Fljótt kom þó í ljós að það var ekki Íslendingur sem hélt þvottabursta að andliti tyrkneska knattspyrnumannsins við komuna til landsins, heldur var það belgískur ríkisborgari.
Ekki hefur eingöngu þvottaburstaatvikið verið gagnrýnt í Tyrklandi. Tyrkneska landsliðið kvartaði undan þeim tíma sem það tók að komast í gegnum vegabréfaeftirlitið og öryggisleitina. Hafa fjölmiðlar í Tyrklandi tengt þessi tvö atvik saman og kalla eftir svörum hvers vegna þessi töf hafi verið. En tyrknesk stjórnvöld segja að þau hafi sent beiðni á íslenska utanríkisráðuneytið þess efnis að fá flýtimeðferð fyrir landsliðið.
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins þar sem kom fram að ekki hafi verið hægt að bregðast við beiðninni með svo stuttum fyrirvara.
„Fáeinum klukkustundum fyrir komu tyrkneska landsliðsins til Íslands óskaði sendiráð Tyrklands í Ósló, sem fer með fyrirsvar gagnvart Íslandi, eftir því við utanríkisráðuneytið að liðið fengi hraðmeðferð í gegnum vegabréfaskoðun og öryggisleit. Því miður var ekki mögulegt að bregðast við beiðninni með svo skömmum fyrirvara, auk þess sem slík fyrirgreiðsla stendur jafnan aðeins ráðamönnum og háttsettum sendierindrekum til boða. Utanríkisráðuneytið hefur svarað orðsendingu tyrkneskra stjórnvalda og áréttað er að framkvæmd eftirlits á Keflavíkurflugvelli hafi verið í samræmi við hefðbundið verklag og ekki hafi reynst unnt að verða við hraðmeðferð.“