Utanríkisnefnd gegn umskurðarfrumvarpi

Leiðtogar repúblikana og demókrata í utanríkisnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþing gagnrýna harðlega frumvarp Silju Daggar Gunnarsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, um bann við umskurði, sem nú liggur fyrir Alþingi.

„Þrátt fyrir að það séu ekki margir múslimar eða gyðingar á Íslandi myndi bann ykkar vera vatn á myllu þeirra sem hagnýta sér kynþáttafordóma og gyðingaandúð í löndum þar sem lýðfræðilegi fjölbreytni er meiri,“ segir í bréfi þeirra Ed Royce, repúblikanans sem fer fyrir utanríkisnefndinni, og Eliot Engel, leiðtoga demókrata í nefndinni. Bréfið er dagsett 5. apríl að því er kemur fram í frétt Vísis.

„Sem vinaþjóð ykkar hvetjum við ríkisstjórnina til að koma í veg fyrir að þetta óumburðarlynda frumvarp nái fram að ganga,“ segir ennfremur í bréfi þeirra Royce og Engel.

Frumvarpið sem nú liggur fyrir alþingi Alþingi felur í sér að umskurður barna almennt yrði bannaður. Ísland yrði fyrsta Evrópulandið til að banna umskurð.