Út í bláinn að halda öðru fram

Morgunblaðið segir frá ummælum Kjartans Magnússonar borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um þá frétt að Kjartan hafi vitað um að verulegu magni skólps hafi verið veitt í sjóinn við Faxaskjól.

Kjartan segir að hann hafi fyrst frétt um það í fjölmiðlum að skólp hafi lekið í sjóinn vegna viðgerða á búnaði. Kjartan segir það út í bláinn að halda því fram að hann hafi vitað af þessu máli áður en það kom fram í fjölmiðlum.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að eini borgarfulltrúinn sem vissi af þessu var Kjartan Magnússon en hvorki Veitur né aðrir upplýstu borgarbúa eða aðra borgarfulltrúa um málið fyrr en það var komið í fjölmiðla hefur Morgunblaðið eftir borgarstjóranum Degi B. Eggertssyn.

 

Nánar www.mbl.is

 

[email protected]