Rússnesk hugsun

Utanríkisráðherra Bandarikjanna Rex Tillerson er á leið til Rússlands. Fréttaskýrendur helstu fjölmiðla eystra og vestra fjalla um þessa heimsókn og kryfja til mergjar orsakir hins djúpstæða ágreinings sem er á milli Bandarikjanna og Rússlands.

Þegar á allt er litið virðist lítið vitað í raun og veru um hvað liggur til grundvallar utanríkisstefnu Rússlands þessa stundina gagnvart Bandaríkjunum. Þegar á allt er litið virðist það vera lítíð og sundurlaust og ónákvæmt.

Að minnsta kosti virðast hugmyndir sérfróðra manna um það sem fram fer innan veggja Kremlarkastala vera ærið sundurleitar og liggja til þess skiljanleg rök.

Um langan aldur lögðu fjarlægðir og samgönguleysi eins konar huliðsblæju yfir þetta fjarlæga land Rússland. Um áratuga skeið voru Sovétríkin lokuð umheiminum. 

Nú á tímum síaukinnar tækni og alþjóðlegra samskipta virðist sem Rússland sé enn lokað umheiminum. Líkast til skilar þessi heimsókn utanríkisráðherra Bandarikjanna engu sérstöku.

Þegar henni er lokið munu blaðafulltrúar Rex Tillerson og Sergei Lavrov segja að gagnlega skoðanaskipti hafi átt sér stað. Annað ekki.

Líkast er til Rússland heimur út af fyrir sig og landið er og verður um alla framtíð róstursamt stórveldi. Rússland á lögmætra öryggis hagsmuna að gæta.

Þetta hefur Rex Tillerson oft sagt en hann sagði þetta reyndar áður en hann varð utanríkisráðherra Bandarikjanna.

Ellefu sinnum á síðustu öld hafa vesturmörk Rússlands - svo notað sé hið hefðbundna nafn landsins - færst ýmist vestur á bóginn eða austur. 

Mörg Evrópuríki hafa mátt þola álíka tilfærslu á landamærum.

Bandaríkin þekkja ekkert slíkt. 

Rússnesk hugsun er mótuð að sögunni. Rússar hafa ekki aðra stefnu en þá að velja að fara eftir reglunni gömlu: \"Ef þið viljið frið þá búið ykkur undir styrjöld.\"

Bandaríkin og Rússland geta endalaust fundað en engir fundir kollvarpa tryggð Rússlands við regluna gömlu. Þannig skrifa bandarískir fjölmiðlar. 

 

 Nánar www.voanews.com