Úrslitastund wow air í dag

Í dag rennur út frestur sem skuldabréfaeigendur í WOW air gáfu flugfélaginu og bandaríska fjárfestingafélaginu Indigo Partners til að ná saman um fjárfestingu Indigo í WOW. Upplýst verður um niðurstöðu í samningaviðræðum Indigo Partners og WOW air með tilkynningu til kauphallar en ekki fást svör um hvort það verði gert í dag eða á morgun. Túristi.is greinir frá.

Staða WOW air hefur verið sérlega tvísýn frá síðasta hausti og var meðal annars á fjórða hundrað manns sagt upp í desember, þar af 111 fastráðnum. Túristi greinir frá því að til að bregðast við versnandi stöðu íslensku flugfélaganna tveggja hafi innan stjórnarráðsins verið sett á laggirnar sérstök nefnd sem undirbúa átti áætlun ef kerfislega mikilvæg fyrirtæki eins og Icelandair og WOW air lentu í vanda.