\"Fyrstu viðbrögð eru að lítast ágætlega á þetta, og ég held að þetta sé skref í átt að því að meta menntun til launa, og vinna að þeim markmiðum að halda í gott starfsfólk. Þannig að ég held að þetta sé gott fyrsta skref en ég held við séum ekki komin í land.“
Þetta sagði Kristbjörg Þórisdóttir, sálfræðingur á áfallamiðstöð Landspítala við fréttastofu RÚV í gærkvöld eftir að fjölmennum fundi Bandalags háskólamanna lauk, en þar var farið yfir úrskurð gerðardóms og þá ákvörðun Hæstaréttar að staðfesta verkfallsbann á félagið. Margar spurningar brunnu á félagsmönnum, en fæstir virtust vera búnir að mynda sér endanlega skoðun á niðurstöðu gerðardóms að því er fram kemur í frétt RÚV. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga heldur sams konar kynningarfund annað kvöld.
318 manns hafa sagt upp á Landspítalanum undanfarið, þar af tugir geisla- og lífeindafræðinga. Eftir því sem fréttastofa RÚV kemst næst hafa störf hjúkrunarfræðinga og háskólamenntaðra starfsmanna spítalans ekki verið auglýst á evrópska efnahagssvæðinu. Forstjóri spítalans vonast til að starfsmenn dragi uppsagnirnar til baka. Samkvæmt heimildum fréttastofu þarf meira til en launahækkanir gerðardóms, gera þurfi innanhúss breytingar á starfseminni til að starfsmenn Landspítalans innan BHM dragi uppsagnir til baka.