Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna andláts karlmanns

Karlmaður um fimmtugt var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í tíu daga gæsluvarðhald, eða til 19. desember, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti karlmanns á sextugsaldri í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Þar segir enn fremur:

„Eins og fram hefur komið féll hinn látni fram af svölum íbúðar fjölbýlishúss í austurborginni eftir hádegi í gær og var fluttur á Landspítalann þar sem hann var úrskurðaður látinn. Fimm karlmenn voru handteknir á vettvangi og hefur einn þeirra verið úrskurðaður í gæsluvarðhaldi, líkt og áður sagði, en hinir fjórir eru lausir úr haldi lögreglu.“