\"Miðað við það sem við höfðum heyrt frá félögum okkar áður en við fórum út þá held ég að þetta sé í samræmi við það, hvorki meira né minna,“ segir Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International, um úrsagnir úr samtökunum á Íslandi.
Rætt við Önnu á Vísi í dag, en úrsagnirnar koma til vegna samþykktar alþjóðasamtakanna á heimsþingi sínu í Dyflinni á Írlandi um að leggja til að vændi verði ekki gert refsivert. Íslandsdeild Amnesty studdi ekki þessa tillögu og sat hjá við atkvæðagreiðsluna.
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, sagði í samtali við kvöldfréttir Stöðvar 2 í gær að fjöldaúrsagnir úr samtökunum væru fyrir dyrum á Norðurlöndunum og víðar eftir að þessi tillaga var samþykkt. Um 8.800 manns er í Íslandsdeild Amnesty og einhver hópur sagt úr samtökunum það sem af er degi. Íslandsdeildin vildi ekki gefa upp að svo stöddu hve margir hafa sagt sig úr samtökunum fyrr en það hefur verið tekið saman að fullu.
Anna Lúðvíksdóttir segir stjórn Íslandsdeildarinnar hafa tekið púlsinn á sínum félagsmönnum áður en haldið var á heimsþingið og sé niðurstaðan eins og við var að búast: \"Þetta er bara í samræmi við það sem við bjuggumst við.“