Úrkomudagar í Reykjavík voru 261 á nýliðnu ári og hafa aldrei verið fleiri. Í Reykjavík voru sólskinsstundir 1.163 á árinu og hafa ekki verið jafn fáar síðan árið 1992. Alhvítir dagar, þar sem jörð er snævi þakin, voru aðeins 38 á árinu í Reykjavík og hafa ekki verið jafn fáir síðan árið 2010. Þetta er meðal þess sem kemur fram í samantekt Trausta Jónssonar veðurfræðings á heimasíðu hans, Hungurdiskar. RÚV.is er meðal þeirra sem greina frá.
Árið 2018 segir Trausti hafa verið úrkomusamt og nokkuð hlýtt. Samkvæmt samantektinni mældist úrkoma í Reykjavík 1059,2 mm og hefur aðeins sjö sinnum mælst meiri frá upphafi samfelldra úrkomumælinga árið 1921.
Meðalhiti í Reykjavík á árinu var 5,1 stig og telst það nokkuð hlýtt, meðalhiti ársins er einn af þeim 30 hlýjustu af 148 frá upphafi hitamælinga. Hiti á landsvísu var nærri meðallagi síðustu tíu ára en þau ár voru sérlega hlý miðað við það sem algengast er hér á landi, að því er kemur fram í samantekt Trausta.