„urha polona“ segist búa á hringbraut 65: stal hundruðum þúsunda af hjónum – „ég sýndi samúð“

Svikahrappar hafa undanfarið svikið fé af fólki á íslenskum leigumarkaði. Til þess nota hinir óprúttnu aðilar falsaða Airbnb-heimasíðu. Þetta kemur fram á mbl.is. Morgunblaðið hefur rætt við þrjú fórnarlömb sem hafa orðið fyrir barðinu á þjófunum en fólkið hefur tapað hundruðum þúsunda króna.

Vestur-íslensk hjón ætluðu að leigja íbúð hér á landi. Þau lögðu fram tryggingu fyrir íbúðinni inn á reikning og var ekki öðruvísi að sjá en að um hefðbundinn reikning á vegnum Airbnb væri að ræða. Var þeim tjáð að þeim stæði til boða leiguíbúð á Hringbraut 65 en auglýsinguna var að finna á fasteignavef Morgunblaðsins. Kona sem sagðist heita Urha Polona svaraði skilaboðunum frá hjónunum. Kvaðst hún vera einstæð móðir sem búsett væri í Berlín og bætti við að hún hefði eignast íbúðina eftir skilnað. Vildi konan fá fyrirframgreiðslu eða tryggingu svo hún gæti komið til landsins að sýna íbúðina. Á vef mbl.is segir:

„Í samtali við Morgunblaðið segir vesturíslenska konan að þeim hjónum hafi fundist þetta tortryggilegt en þegar hún bauð þeim að borga í gegnum Airbnb töldu þau að þetta væri ílagi. Þeim var sagt að þau gætu hætt við hvenær sem væri og þá myndi Airbnb endurgreiða þeim trygginguna. Það sem þau vissu ekki var að svindlarinn sendi þau á falsaða Airbnb-síðu sem í fljótu bragði virðist afar lík alvöru heimasíðu Airbnb.

„Ég var svikin því ég sýndi samúð með aðstöðu eiganda íbúðarinnar og var svo ákveðin að finna góða íbúð tilað leigja á viðráðanlegu verði. Ég lét meira að segja vini og fjölskyldumeðlimi skoða fölsuðu Airbnb-síðuna og engum af þeim fannst hún grunsamleg heldur. En þremur dögum eftir að ég millifærði peningana tilkynnti eig-andi íbúðarinnar mér að íbúðin væri ekki lengur til leigu því fjölskyldumeðlimur ætlaði leigja íbúðina í staðinn,“ segir konan í samtali við Morgunblaðið.

Þá var þeim tjáð að tryggingin myndi skila sér innan tveggja vikna. Fljótlega eftir þetta kom í ljós að um svindl hefði verið að ræða. Reynt var að svíkja fleiri einstaklinga og er saga þeirra sögð í Morgunblaðinu. Þá tapaði pólsk kona búsett hér á landi 400.000 krónum eftir að hafa verið svikinn af sama einstakling.