Urgur er í sumum konum vegna þess að þær hafi verið innlimaðar í hóf á facebook án vitundar þeirra og jafnvel aftur eftir að þær hafa skráð sig úr hópnum.
Helga Kvam, skólastjóri í Eyjafirði, bendir á athugasemd við frétt Hringbrautar fyrr í dag þar sem sagði frá hópnum, Góða systir, að miðað við umræðuna þá sýnist henni að fæstar konurnar hafi skráð sig sjálfar, heldur hafi þeim verið bætt í hópinn að þeim forspurðum.
„Og einhverjar kvarta yfir því að vera settar í hópinn aftur og aftur þrátt fyrir að skrá sig úr honum. Það telst nú ekki merkilegt að hafa meðlimi sem ekki óskuðu eftir aðild.“
Fleiri konur hafa nefnt þetta við Hringbraut.
Í frétt Hringbrautar fyrr í dag sagði m.a. að um 50.000 konur væru komnar í hópinn á örskömmum tíma en með fésbókarsíðunni væri verið að \"hvetja til vitundarvakningu um hvernig konur tala um aðrar konur svona almennt séð,\" eins og segir þar: \"Við eigum að vera systur og standa saman og sýna litlum og stórum konum fordæmi með því,\" segir þar einnig.