Urðað yfir áróðurssíðu Sósíalista: „Ömurlegur drullumokstur“ – „Sorglegt dæmi“

„Varð nýverið þess heiðurs aðnjótandi að einkaáróðurs-síða Andra Sigurðssonar fyrir Sósíalistaflokkinn - Jæja - gerði meme um mig. Ég hef reyndar ekki verið í framboði fyrir Pírata síðan 2016 en ég þakka bara fyrir mig!,“ segir Viktor Orri Valgarðsson, doktor í stjórnmálafræði, á Facebook og deilir hann mynd Jæja-hópsins:

Miklar umræður sköpuðust um Jæja síðuna undir færslunni. Lengi vel lá ekki fyrir hver stæði að baki nafnlausa áróðrinum. Árið 2019 kom í ljós að Guðmundur Hörður Guðmundsson, kynningarstjóri hjá Háskóla Íslands, væri að stýra síðunni. Síðan hefur Andri Sigurðsson, stjórnarmaður í Sósíalistaflokk Íslands, gengist við því. Andri skipar heiðurssæti á lista flokksins í Reykjavík Suður.

Mynd Jæja beindist að gagnrýni Viktors Orra á ummæli Gunnars Smára Egilssonar, Sósíalistaforingja, um að reka dómara úr Hæstarétti. Alexandra Briem, forseti borgarstjórnar, segir: „Ég veit ekki hvort er magnaðara, að Gunnar Smári og Katrín hafi látið þessa hluti út úr sér, eða að menn eins og Andri fari bara í 100% vörn og kaffæringarherferð gegn þeim sem setja spurningamerki við þessi áform, frekar en að hugsa mögulega sinn gang aðeins, og þá amk. útskýra það ef það var ekki þetta sem við var átt.“

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason er harðorður í garð Jæja: „Ömurlegur drullumokstur þessi síða. Sorglegt dæmi. Illkvittnin ríður ekki við einteyming. Þarna er logið upp á fólk og orð þess afbökuð. Það voru aðrar svona síður í gangi fyrir síðustu kosningar, þá frá hægri, en ég hef ekki séð þær núna.“

Rithöfundurinn og varaþingmaðurinn fyrrverandi Snæbjörn Brynjarsson bendir á að Facebook hafi staðið sig vel í að hreinsa út nafnlausan áróður: „Facebook hefur tekið á nafnlausum sponsuðum nafnlausum áróðri. Einhvern veginn sleppur Jæja af því Andri Sigurðsson er til í að gangast við því að vera að baki síðunni.“