Úr hitameti í slydduél

 Búast má við stormi, meira en 20 m/s á Ströndum og Norðurlandi vestra í dag skv. aðvörun frá veðurfræðingi á Veðurstofunni.  

Einnig má búast við snörpum vindhviðum, allt að 35 metrum á sekúndu við fjöll víða um land, allt frá Snæfellsnesi og frá Vestfjörðum austur að Eyjafirði fram á kvöld.

Óvanalega hlýtt loft er yfir landinu eins og Hringbraut sagði frá í gær. Var hitamet 16. október frá því að mælingar hófust slegið í gær þegar hiti mældist 18,4 stig í Neskaupstað. Þá féll dagsmetið sem var 18,2 stig á Teigarhorni en það hafði staðið allt frá 1934. Þetta hlýja loft er á mikilli hreyfingu samanbet spár um vindstyrk dagsins í dag en skammt er stórra högga á milli eins og fram kemur í spá Veðurstofu og stutt frá hitameti í slyddu.

Spá Veðurstofu fyrir landið er allt er að suðlæg átt muni ríkja á öllu landinu, 5-13 m/s, en 13-23 um landið NV-vert, og víða hvassir vindstrengir við fjöll sem fyrr segir. Súld eða rigning með köflum, en þurrt að kalla fyrir norðan og austan. Léttskýjað um landið N- og A-vert í dag, annars dálítil væta. Bætir í úrkomu og lægir V-lands seint í kvöld, en suðvestan 5-13 og skúrir í nótt og jafnvel slydduél á stöku stað.

Áfram verður bjartviðri NA- og A-lands en þar hefur veðurblíðan í október verið langt umfram venju. Hiti verður 7 til 15 stig, en 2 til 10 á morgun, hlýjast NA- og A-til.