Geir Þorsteinsson, fyrrverandi formaður KSÍ, leiðir framboðslista Miðflokksins í Kópavogi til bæjarstjórnarkosninganna í vor.
Í fréttatilkynningu frá Miðflokknum segir Geir að hann muni leggja áherslu á að ná betri árangri í fjármálum bæjarins svo lækka megi útsvarið úr 14,48 prósentum í 14 prósent á kjörtímabilinu. Geir nefnir líka að unnið verði að því að stofna framhaldsskóla í efri byggðum Kópavogs og áhersla lögð á að nemendum standi til boða kennsla eins og best gerist.
Geir hefur unnið innan knattspyrnuhreyfingarinnar frá 1981 og í Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ) frá 1992, sem framkvæmdastjóri KSÍ 1997-2007 og formaður KSÍ 2007-2017. Hann hefur setið í nefndum fyrir Knattspyrnusamband Evrópu UEFA frá 1998 og Alþjóða knattspyrnusambandið FIFA frá 2007 og sinnir nú sérstökum verkefnum fyrir Knattspyrnusamband Evrópu.