Upptök skjálftans voru vestur af athafnasvæði virkjunarinnar

Skjálftinn sem varð vestur af Henglinum í morgun hafði engin áhrif á rekstur Hellisheiðarvirkjunar. Í virkjuninni er unnið rafmagn og heitt vatn fyrir höfuðborgarsvæðið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitunni. Jarð­skjálftinn var af stærðinni 3,6. Veður­stofunni hafa borist tugir til­kynninga um að skjálftinn hafi fundist víða á Höfuð­borgar­svæðinu, í Hvera­gerði og á Akra­nesi.

Hengilssvæðið er þekkt jarðskjálftasvæði og hvortveggja Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun, sem er norðan við Hengilinn, eru hannaðar með tilliti til þess.

Upptök skjálftans voru nokkuð vestur af athafnasvæði virkjunarinnar á talsverðu dýpi. Árið 2011 var skjálftavirkni sem tengd var breytingum á niðurdælingu jarðhitavatns frá Hellisheiðarvirkjun. Engin slík breyting var í aðdraganda skjálftans í morgun en almennt getur jarðhitavinnsla haft áhrif á spennu í nærliggjandi jarðlögum.

Vísindafólk Orku náttúrunnar hefur verið í sambandi við starfssystkini sín hjá Jarðvárvakt Veðurstofunnar í morgun og mun fylgjast grannt með þróun mála á svæðinu.