Heilbrigðisráðherra, Kristján Þór Júlíusson, mun á morgun fimmtudaginn 18.febrúar steypa fyrstu steypu fyrir tækni og umferðargöngum vegna byggingar nýs sjúkrahótels Landspítala við Hringbraut.
Sjúkrahótelið verður fyrsta nýbygging nýs Landspítala við Hringbraut og verður tekið í notkun árið 2017 og er það með 75 herbergjum. Húsið mun rísa á norðurhluta lóðar Landspítala við Hringbraut milli Kvennadeildar, K-byggingar og Barónsstígs. Aðalhönnuðir hússins eru KOAN-hópurinn, en forhönnun, skipulagsgerð, hönnun gatna og lóðar er unnin af Spital-hópnum. Steinklæðningarnar eru listskreyting hússins, en listaverkið er unnið af Finnboga Péturssyni myndlistarmanni samkvæmt samkomulagi hans við Listskreytingarsjóð.
Sjúkrahótelið er kjallari og fjórar hæðir. Byggingin er 4.258 fermetrar að stærð (brúttó eða 14.780 rúmmetrar (brúttó) með kjallara og tengigöngum sem tilheyra hótelinu. Hótelið mun tengjast Barnaspítala /Kvennadeild um tengigang í kjallara.