Uppskrift: flottasta jólabrauðtertan sem sögur fara af

Berglind Hreiðarsdóttir matar- og sælkerabloggari með meiru toppar sig í frumlegum skreytingum og samsetningum á brögðum þegar kemur að Jólabrauðtertunni í ár. Sjöfn Þórðar fékk Berglindi til að gefa lesendum uppskriftina af jólabrauðtertunni og útskýringunni á þessum nýju brögðum.

„Ég var smá stressuð að setja trönuber út í skinkusalatið og smakkaði þetta fram og tilbaka áður en ég lét slag standa. Sætan úr þeim passar fullkomlega á móti reykta bragðinu af skinkunni. Þeir sem smökkuðu þessa voru á einu máli um að hún væri alveg svakalega góð,“ segir Berglind og er alsæl með útkomuna.

Hér kemur uppskriftin af þessari glæsilegu Jólabrauðtertu og einnig er hægt að fylgjast með blogginu hennar Berglindar á síðunni hennar Gotterí og gersemar:  https://www.gotteri.is/2019/12/19/jolabraudterta/

\"\"

Jólabrauðterta

  • 450 g hamborgarhryggur (eða önnur reykt skinka)
  • 8 harðsoðin egg
  • 400 g Hellmann‘s majónes
  • 60 g þurrkuð trönuber
  • 2 msk. smátt saxað sellerí
  • Aromat og pipar eftir smekk
  • 5 brauðtertubrauðsneiðar (langar)

Skraut

  • 400 g Hellmann‘s majónes
  • Um 500 g fersk trönuber (2 pokar)
  • Um 4 pakkar rósmarín (4 x 28 g)
  • Brómber
  • Þunnt skorinn hamborgarhryggur
  1. Skerið hamborgarhrygginn í sneiðar og síðan í litla bita (það má hálfpartinn saxa hann).
  2. Skerið eggin á tvo vegu með eggjaskera og setjið saman við skinkuna.
  3. Blandið majónesinu saman við á þessu stigi og saxið þá trönuberin og selleríið mjög smátt og bætið saman við.
  4. Kryddið eftir smekk og skiptið í 4 hluta.
  5. Skerið skorpuna af brauðtertubrauðinu og smyrjið salatinu á milli sneiðanna.
  6. Þekjið brauðtertuna að utan með majónesi og skreytið að vild.

Gleðilega hátíð.