\"En, örvæntið ekki! Framsókn á nokkur tromp uppi í erminni,\" skrifar Ólafar Arnarson, pistlahöfundur á Hringbraut sem slær á ótta þeirra sem halda að Framsókn sé púnkteruð. Hann horfir haukfránum augum fram á hið pólitíska svið - og framtíðarsagan er svona:
\"Það byrjar á því að gerð verður krafa á Sjálfstæðisflokkinn að hann taki tafarlaust þátt í að afnema verðtryggingu af öllum neytendalánum. Það mun Sjálfstæðisflokkurinn ekki gera því honum finnst svo ofur vænt um verðtrygginguna, sem hefur reynst svo mörgum forystumanninum þar á bæ svo vel svo lengi. Fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins yrði það næstum eins og að gefa nánum ættingja banvæna sprautu að afnema sjálfa verðtrygginguna,\" skrifar Ólafur og yddar skriffærið enn frekar:.
\"Og þá springur ríkisstjórnin. Næsta sem Framsókn gerir er að bjóða stjórnarandstöðunni til samstarfs um að afnema verðtrygginguna og breyta stjórnarskránni fyrir vorið og láta svo kjósa til þings í sumar. Með þessu útspili veitir Framsókn Samfylkingunni náðarhöggið því þar á bæ er allt upp í háaloft einmitt vegna verðtryggingarinnar, fyrir nú utan forystuvandræðin. Það mun því ekki nást samstaða meðal stjórnarandstöðunnar um að ganga til liðs við Framsókn um afnám verðtryggingarinnar og nauðsynlegar breytingar á stjórnarskránni um nýtt auðlindaákvæði og beint lýðræði.\"
Og fari svo ólíklega, skrifar Ólafur að samstaða náist við stjórnarandstöðuna um afnám verðtryggingar gerir það ekkert til fyrir Framsókn. Flokkurinn geti þá siglt inn í kosningar á því að hafa sprengt stjórnarsamstarfið við hinn spillta Sjálfstæðisflokk til að afnema verðtrygginguna og allt er í góðu.
En líklega næst þessi samstaða ekki, skrifar hann áfram og getur þá Framsókn bent á alla aðra flokka sem sökudólga þess að ekki náðist að afnema verðtrygginguna: \"Vilji kjósendur lýðræðisumbætur og afnám verðtryggingar verði þeir einfaldlega að tryggja Framsókn svo góðan sigur í þingkosningum að flokkurinn fái afl til að framkvæma kosningaloforðin sem Sjálfstæðisflokkurinn hafi staðið í vegi fyrir og stjórnarandstaðan ekki fengist til liðs við. Svona getur Framsókn unnið stórsigur og valið eftir kosningar hvort sjálfstæðismönnum, sem varla detta niður fyrir 18 prósent, eða Pírötum, sem eflaust munu ná meira en 18 prósentum, sérstaklega ef kosið verður fyrr en seinna, upp í stjórnarsængina.\"
Þetta er ein uppskrift að næsta kosningasigri Framsóknar en spurningin í huga Ólafs er vitanlega hversu áhættusæknir eru Framsóknarmenn? Þeir geti setið í eitt ár í viðbót í ríkisstjórn með sjálfstæðismönnum og úthlutað fjármálakerfinu til valinna aðila eða reynt að ná fjórum árum í viðbót í ríkisstjórn með einhverri svona fléttu.