Uppselt í tvær pakkaferðir frá íslandi til kína: 8,235 sýkst af kórónaveirunni – veiran komin til finnlands

Ekki stendur til að hætta við pakkaferð ferðaskrifstofunnar Vita til Kína um páskana. Uppselt er í ferðina. Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins. Þá er einnig uppselt í ferð til Kína með Heimsferðum. Guðrúnar Sigurgeirsdóttur, framleiðslustjóri Vita segir í samtali við Fréttablaðið:

„Við höfum verið að fylgjast með fréttum af veirunni og höfum verið í nánum samskiptum við embætti landlæknis. Sóttvarnarlæknir og landlæknir hafa ekki farið fram á ferðabann svo við erum að bíða átekta og fylgjumst með þróun mála.“

Guðrún rifjar upp þegar fuglaflensan ógnaði heimsbyggðinni en segir að eftir mikla umfjöllun hafi allt dottið í dúna logn. Hún segir að ferðaskrifstofan muni taka upplýsta ákvörðun í samvinnu heilbrigðisyfirvöld þegar að því kemur. Þá segir hún að áfangastaðir Vita séu ekki nálægt Wuhan-héraði en ferðaskrifstofan selur ferðir til Peking, Xian, Guilin og Shanghai.

Það má geta þess að vírusinn hefur ferðast eins og eldur í sinu í Kína og minnst einn látist í Shanghai sem er ein af þeim borgum sem stefnt er á að fljúga til um Páskana.

Þá hefur fólk veikst í Frakklandi, Bandaríkjunum, Þýskalandi og ein manneskja hefur greinst með veiruna í Finnlandi. 8,235 hafa sýkst þegar þetta er skrifað og 171 látist.

Hægt er að sjá allar staðsetningar um allan heim þar sem kórónuveirusmit hafa verið staðfest hé á vef John Hopkins háskólans.

Hér mál lesa frétt Fréttablaðsins í heild sinni.