Óhætt er að segja að landsmenn horfi út fyrir landsteinana um páskahelgina sem bátt fer í hönd því svo að segja vonlaust er að kaupa sér flugfar úr landi nú um stundir. Uppselt er í svo gott sem allar ferðir til Evrópu og Bandaríkjanna næstu tvær vikurnar og muna menn vart annað eins hjá bókunardeildum flugfélaganna. "Þetta er orðið eins og í leikhúsunum, örfá sæti laus," sagði starfsmaður eins flugfélagsins við hringbraut.is í morgun - og benti á að í febrúar hefði komið inn hrina pantana frá fólki sem þráði ekkert heitara en sól og yl í kroppinn eftir erfiðan vetur.
Og hann hefur vissulega verið erfiður; 57 daga það sem af er þessu ári hafa verið gefnar út stormviðvaranir og eru lygnir dagar rétt um 20. Og flutningafyrirtækin hafa fundið fyrir vetrinum í meira lagi en áður; aldrei hafa fleiri ferðir á sjó, landi og lofti tafist sökum veðurs en þennan veturinn, til að mynda hafa nálega 30 flug hjá Icelandair raskast og verið felld niður vegna illviðris á Keflavíkurflugvelli en eru vanalega innan við 5 á venjulegum vetri.